29.01.16 - 20:00
Arnar Geir Halldórsson
Senderos til Grasshoppers (Staðfest)

Heima er best

Mynd: Getty Images

Heima er best

Mynd: Getty Images
Svissneski varnarjaxlinn Philippe Senderos hefur samið við Grasshoppers í heimalandinu.
Samningi Senderos við Aston Villa var rift á dögunum en það tók þennan þrítuga miðvörð ekki langan tíma að finna nýtt félag.
Senderos gerir samning út tímabilið en Grasshoppers er í öðru sæti svissnesku úrvalsdeildarinnar, tíu stigum á eftir Birki Bjarnasyni og félögum í Basel.
Senderos er einn leikreyndasti landsliðsmaður Sviss og vonast til að vinna sér sæti í landsliðshópnum fyrir EM í Frakklandi næsta sumar