29.01.21 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gulli opnar sig, laug í viðtölum eftir leikinn í Rotterdam - „Þetta var hræðilegt"

Gulli og Birkir Már Sævarsson í Rotterdam.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Gunnleifur lagði hanskana á hilluna síðasta haust.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnleifur Vignir Gunnleifsson var gestur í hlaðvarpsþættinum Fantasy Gandalf í gær. Hugi Halldórsson er þáttarstjórnandi og Gunnar Sigurðarson var honum til halds og trausts.
Gulli lagði hanskana á hilluna eftir síðasta tímabil og var beðinn um einhverja hápunkta frá ferlinum. Gulli vann til Íslands- og bikarmeistaratitla en Gunnar skaut að honum landsleiknum gegn Hollandi í Rotterdam árið 2008. „Augnablikið þegar þú stóðst á mili stanganna og allar þessar kempur á móti þér, þú veist allt um mennina sem sækja á þig," sagði Gunnar. „Ég er ekki að segja að það sé hápunkturinn en það augnablik finnst mér svo rómantískt að ég hólkast allur upp við tilhugsunina."

„Þetta var ólýsanlegt, það var stórkostleg upplifun að spila á þessum velli á móti þessu liði með íslenska landsliðinu. Ég á aldrei eftir að gleyma þessu," sagði Gunnleifur við Magnús Má Einarsson þann 11. október 2008.
Laug í viðtalinu
„Ég laug í viðtölum eftir leikinn 'stórkostlegt móment að spila þennan leik' sem þetta var og er auðvitað. Þarna var ég valinn í landsliðið í fyrsta sinn í 7-8 ár, gegn Hollandi úti. Þá var ég nýbúinn að spila með HK gegn Grindavík á Kópavogsvelli og sá leikur tapaðist 2-0. Svo var ég valinn í hópinn, ég og Árni Gautur Arason komum inn. Ég hélt ég væri varamarkvörður fyrir Árna en svo kom á daginn að ég myndi spila þennan leik," sagði Gulli.
„Það var ekkert sérstakt, þá fór mér að verða flökurt, varð stressaður og þetta var óþægilegt. Við förum á völlinn í rútu með lögreglufylgd. Ég sá liðið þeirra, það voru allir þessir kallar, Huntelaar, Van der Vaart og fleiri. Svo fer ég í upphitun og ég greip ekki boltann, þetta var bara hræðilegt. Ég var svo í grænni treyju sem var bannað á þeim tíma þegar ég var í HK. Ég labba inn úr göngunum, lít til hliðar og sé Edwin van der Sar, og verð bara náfölur. Svo kom þjóðsöngurinn og mér er bara flökurt. Það var fallegt moment að standa hliðin á bróðursyni mínum, Birki Má Sævarssyni. Ég þóttist allan þjóðsönginn vera svaka stoltur og svona en hugsaði af hverju ég væri ekki bara heima hjá Hildi að horfa á leikinn, leyfa sér að líða vel. Þetta var alveg hræðilegt."
„Svo byrjar leikurinn og ég trúði því ekki að ég gæti varið skot í leiknum. Þeir koma á okkur og fyrsta markspyrnan kemur, ég hef ekki verið góður í fótunum, ekki verið mín sterkasta hlið. Ég stilli upp boltanum, horfi fram á völlinn, sé gæjana sem ég er að spila við í appelsínugulu, ég er búinn að lifa fótbolta frá því ég var barn, ég vissi hver allir voru, þetta var svo óraunverulegt og 40 þúsund manns í stúkunni. Rosaleg stemning og bein útsending alla leið til Íslands. Ég hugsaði ég verð, ég bara verð að hitta boltann - ég verð að hitta upp á miðju, annars dey ég á vellinum. Svo hitti ég boltann ágætlega og við töpuðum leiknum 2-0. Þetta var hræðilegt. Fullt af leikjum sem ég hef spilað og leikjum sem mér hefur hreinlega liðið bara illa í vegna stressi og kvíða, frelsandi að geta sagt þetta allt núna," sagði Gulli.
„Ég held að þessi hræðsla hafi hjálpað mér á ferlinum, að vilja ekki gera mistök. Það er svo leiðinlegt að geta ekki notið þess betur. Ég held að það sé óeðlilegt þegar þú spilar fótboltaleiki að vera ekki með þessi svokölluðu fiðrildi í maganum, smá kvíða. Ég var orðinn svo þreyttur á að líða svona."
Gulli lék alls 26 landsleiki á sínum ferli.

Fullt tungl með @gunnarsigur og @GGunnleifsson mjög fallegt. Kveðja https://t.co/kmVWVMv8AX
— Hugi Halldórsson (@hugihall) January 28, 2021