Fotbolti.net
29.01.22 - 20:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Adama Traore heim til Barcelona (Staðfest)

Traore fer til Barcelona.

Traore fer til Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

Katalóníustórveldið Barcelona hefur krækt í kantmanninn Adama Traore á láni frá enska úrvalsdeildarfélaginu Úlfunum.
Wolves staðfestir þessi tíðindi í tilkynningu í kvöld.

Traore er á heimleið en hann ólst upp í nágrenni Nývangs, heimavallar Barcelona. Hann mun nú klára tímabilið með Barcelona sem er með klásúlu um möguleika á kaupum. Sú ákvörðun mun liggja hjá Barcelona.

Hinn 26 ára gamli Traore hefur vakið athygli í ensku úrvalsdeildinni fyrir að vera mjög vöðvastæltur en á sama tíma gríðarlega snöggur. Hann getur sprengt upp leiki en það sem hefur aftrað honum er að binda lokahnút á sóknir.

Traore fór fyrst til Englands 2015 þegar hann gekk í raðir Aston Villa. Hann var í tvö ár hjá Middlesbrough og fór svo til Wolves á metfé, 18 milljónir punda, árið 2018. Hann spilaði alls 154 leiki fyrir Úlfana og skoraði 11 mörk.

Tottenham hafði líka áhuga, en heimahagarnir heilluðu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.