Fotbolti.net
29.01.22 - 18:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Woo kominn til Þórs (Staðfest) - Mættur í Þorpið

Woo hér fyrir miðju.

Woo hér fyrir miðju.

Canon

Mynd: Þór

Lengjudeildin
Þór á Akureyri hefur staðfest komu sóknarmannins Je Wook Woo, sem kemur frá Suður-Kóreu.
Hann kom til reynslu á dögunum og skoraði fjögur mörk í 7-0 sigri liðsins gegn KA2 í Kjarnafæðismótinu.

Woo hefur leikið í Suður-Kóreu og í Ástralíu, og mætir hann núna til Íslands. Þórsarar bjóða sóknarmanninn velkominn í Þorpið.

„Woo er líkamlega sterkur og duglegur leikmaður. Hann hefur sýnt það einnig að hann geti skorað mörk. Fyrst og fremst held ég að hann passi vel inn í hópinn okkar, bæði sem persóna og sem leikmaður," segir Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs.

Hann kemur til með að styrkja sóknarleik Þórsara, sem leika í Lengjudeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.