Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. janúar 2023 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Liverpool heimsækir Brighton aftur
Mynd: EPA

Það eru þrír leikir á dagskrá í enska bikarnum í dag þar sem stórleikur fer fram í háskólabænum Brighton.


Brighton tekur þar á móti Liverpool í annað sinn með skömmu millibili en liðin gerðu 3-3 jafntefli í æsispennandi úrvalsdeildarslag um miðjan janúar. 

Liðin geta teflt fram sínum sterkustu byrjunarliðum í ljósi þess að þau mæta ekki aftur til leiks fyrr en næsta laugardag.

Stoke City tekur svo á móti Stevenage skömmu eftir upphafsflautið í Brighton og svo heimsækir Sheffied United utandeildarlið AFC Wrexham, sem er eitt af elstu félögum heims, í lokaleik dagsins. 

Stöð 2 Sport 2 er með sýningarréttinn á enska bikarnum.

Leikir dagsins:
13:30 Brighton - Liverpool
14:00 Stoke - Stevenage
16:30 Wrexham - Sheffield United


Athugasemdir
banner
banner