Fotbolti.net
29.02.16 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Alexander Aron aftur í Aftureldingu (Staðfest)

dabbalabba

dabbalabba

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alexander Aron Davorsson er genginn aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Aftureldingu eftir að hafa verið hjá Fram síðasta sumar.

Alexander kom við sögu í 12 leikjum í 1. deildinni í fyrra er Fram endaði í 9. sæti, en sóknarmaðurinn blóðheiti hefur alla tíð verið duglegur að raða inn mörkunum fyrir Mosfellingana rauðklæddu.
Afturelding endaði í 6. sæti 2. deildarinnar á síðasta tímabili og hefur Alexander mikla reynslu úr þeirri deild enda búinn að spila þar í mörg ár með Aftureldingu áður en hann var fenginn yfir til Framara.

„Stjórn Aftureldingar telur þetta heillaskref og er viss um að væntingar um mikið markaregn í sumar eigi vel rétt á sér enda valinn maður í hverju rúmi fyrir átök sumarsins,\" stendur á vefsíðu Aftureldingar.

Heimild: Afturelding.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.