29.03.13 - 12:07
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Böðvar í Fjölni (Staðfest)

Guðmundur Böðvar skrifar undir samninginn. Með honum á myndinni eru Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis og Kristján Einarsson formaður knattspyrnudeildar.

Mynd: Fjölnir

Fjölnir hefur fengið Guðmund Böðvar Guðjónsson til liðs við sig frá ÍA.
Guðmundur Böðvar hefur skrifað undir eins árs samning við lið Fjölnis og mun leika með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.

Guðmundur Böðvar er 23 ára gamall en hann hefur leikið bæði í vörninni og á miðjunni hjá ÍA undanfarin ár.
Síðastliðið sumar spilaði Guðmundur sjö leiki með Skagamönnum í Pepsi-deildinni.
Samtals hefur Guðmundur spilað 94 deildar og bikarleiki með ÍA og skorað í þeim tvö mörk en hann lék sinn fyrsta leik með liðinu árið 2006.