29.03.13 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Vladan Vukovic í KF (Staðfest)

Vukovic í baráttu við James Milner í leik Newcastle og Ventspils árið 2006.

Mynd: Getty Images

KF hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í fyrstu deildinni í sumar en félagið hefur samið við miðjumanninn reynda Vladan Vukovic.
Vladan er 36 ára gamall Serbi en hann hefur spilað yfir 250 leiki í efstu deild í heimalandi sínu.

Vladan spilaði einnig í fimm ár í Grikklandi og síðan í Lettlandi þar sem hann varð meistari með Ventspils.
,,Vladan er reynslumikill miðvallarleikmaður og mikill leiðtogi á velli. Það verður gaman að sjá hann í röðum KF í sumar,\" segir í fréttatilkynningu frá KF.
Þá hefur varnarmaðurinn Kristján Vilhjálmsson ákveðið að vera áfram í herbúðum KF nú í sumar en hann hefur verið hjá liðinu undanfarin þrjú ár.