Fotbolti.net
29.03.14 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Kristján Valur og sex aðrir í Árborg (Staðfest)

Kristján Valur og Guðjón B. Hálfdánarson, þjálfari Árborgar.

Kristján Valur og Guðjón B. Hálfdánarson, þjálfari Árborgar.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Varnarmaðurinn Kristján Valur Sigurjónsson hefur gengið í raðir 4. deildarliðs Árborgar á Selfossi frá Hamri í Hveragerði.
Kristján Valur er tvítugur miðvörður en hann er reyndar ekki ókunnugur Árborgarliðinu því hann lék með liðinu bæði í 2. deildinni 2011 og í 3. deildinni 2012 á láni frá Selfossi, áður en hann skipti yfir í Hamar.

Knattspyrnufélag Árborgar gekk frá sjö félagaskiptum í fyrradag áður en liðið hóf keppni í C-deild Lengjubikars karla í gærkvöldi.

Auk Kristjáns komu þeir Guðmundur Karl Eiríksson, Trausti Eiríksson og Sigurður Sigurðsson frá Selfossi, Ársæll Ársælsson frá Stokkseyri, Hrannar Eysteinsson frá Gnúpverjum og Arnþór Guðmundsson frá Laugdælum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.