Fotbolti.net
29.03.16 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson

Bjarki Aðalsteinsson í Þór (Staðfest)

Bjarki Aðalsteinsson í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn Bjarki Aðalsteinsson mun leika með Þórsurum í 1. deildinni í sumar.

Bjarki lék með Selfossi í 1. deildinni sumarin 2013 og 2014 en hefur einnig leikið fyrir Reyni Sandgerði og Augnablik.
Bjarki hefur einnig reynslu af knattspyrnuheiminum vestanhafs þar sem hann var fyrirliði síns liðs í háskólaboltanum og var valinn í lið tímabilsins.

Bjarki, sem er uppalinn Bliki, er bróðir Arnórs Sveins Aðalsteinssonar, fyrirliða Breiðabliks.

„Bjarki er sannarlega góð viðbót við flottan leikmannahóp okkar Þórsara og passar vel inn í þá hluti sem við leggjum upp með í sumar,\" sagði Aðalsteinn Pálsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, samkvæmt vefsíðu thorsport.is.

„Það er mikilvægt fyrir okkur að fá svo hávaxinn leikmann inn í miðja vörnina en Bjarki sem er yfir 1.90 er bæði mjög sterkur í loftinu en um leið er hann líka góður á boltann.\"

Heimild: thorsport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.