29.03.16 - 20:20
Elvar Geir Magnússon
Remi Garde hættur með Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Remi Garde hefur hætt störfum sem knattspyrnustjóri Aston Villa. Liðið vermir botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar og ekkert virðist geta bjargað því frá falli.
Garde er 49 ára og tók við stjórnartaumunum af Tim Sherwood í nóvember síðastliðnum en entist aðeins fjóra mánuði í starfi.

Garde var látinn taka pokann sinn en hann vann aðeins tvo af 20 deildarleikjum sem hann stýrði.
Margir töldu að hann væri kominn að endastöð þegar hann gagnrýndi leikmenn Villa opinberlega og sagði þá ekki hafa löngun til að halda félaginu í efstu deild.
Aston Villa situr á botni úrvalsdeildarinnar með einungis 16 stig, 12 stigum frá öruggu sæti.
Eric Black mun taka við stjórnartaumunum þar til arftaki Garde finnst en nokkuð ljóst er að Aston Villa mun spila í Championship-deildinni að ári.
Samkvæmt opinberri yfirlýsingu Aston Villa var sameiginleg ákvörðun um að Garde myndi stíga frá borði en flestir fjölmiðlar eru sammála um að hann hafi einfaldlega verið rekinn.