Ummæli Guðjóns Þórðarsonar og fleira tengt landsliðinu koma einnig við sögu í Twitter pakkanum í dag.
Hér að neðan má sjá það helsta úr umræðunni á Twitter í dag í boði Vodafone.
Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum. Notið kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter. Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet.
Ræddi við Viðar áðan sem segir ekkert til í því að Valerenga hafi bannað KSÍ að velja sig. Þessi ummæli Adda eru galin. Virkaði þvílíkt undirbúið svar en heldur engu vatni.
— Sæbjörn Steinke (@saebjornth) March 29, 2021
Landsliðsþjálfarinn á í VÖK að verjast.
— Jón Júlíus Karlsson (@JonJKarlsson) March 29, 2021
Það er ævintýralegt að fylgjast með umræðunni um Viðar Örn Kjartansson í dag. Þetta er ekki góð byrjun hjá landsliðsþjálfara.
— Stefán Árnason (@StefanArnason) March 29, 2021
Landsliðsþjálfarinn að ljúga í opið geðið á landsmönnum. Verð að óska eftir vott af standard frá Arnari Þór og KSÍ. VÖK ætti augljóslega að vera allavega í hópnum og þetta er orðið ansi neyðarlegt.
— Egill Sigfússon (@EgillSi) March 29, 2021
Þetta var galin ráðning til að byrja með ef þú spyrð mig. Þetta er risa jobb, fáið mann með alvöru cv og ekki vera spara launkostnað í þetta starf.
— Aci Milisic (@acimilisic) March 29, 2021
Addi Vidd fyrsti maðurinn til að grafa ormagöng pic.twitter.com/fVRSZhWWuV
— Andrés Már Jónasson (@AndresMar90) March 29, 2021
En markmiðinu er allavega náð, sonurinn er kominn í hópinn🙂 https://t.co/xZ1UXWPX17
— Tómas Sjöberg (@tommisjoberg) March 29, 2021
Er einhver þarna úti í kosmóinu sem getur sagt mér hvað bekkjarformaðurinn hjá OB Sveinn Aron, hefur knattspyrnulega séð fram yfir Viðar Örn og Elías Már, annað en að vera sonur Eiðs Smára aðstoðarlandsliðsþjálfara? #fotboltinet #KSI
— Guðmundur I. Guðmundsson (@Gudmundur77) March 29, 2021
Arnar Þór og Vålerenga - örskýring
— Atli Fannar (@atlifannar) March 29, 2021
AÞ: Já, er það Vålerenga. Við erum að spá í með Viðar...
Vålerenga: Já, Viðar kallinn?
AÞ: Segjum það. Bless.
Ragnar Reykás. Sagði í viðtali um daginn að þessi týpa af framherja hafi ekki hentað hópnum í þetta verkefni. Meira helvítis bullið!
— Theodor Palmason (@TeddiPonza) March 29, 2021
Nú eru ég og @Vidarkjartans svarnir óvinir, alltaf verið og munum alltaf vera, og það vita allir en þetta er sæmilega vont look fyrir Arnar.
— Daníel Ólafsson (@danielolafsson) March 29, 2021
Valeranga bannaði honum að mæta, einmitt það já. Annað hljóð í strokknum hjá landsliðsþjálfaranum fyrir viku síðan🤔Úffffff pic.twitter.com/clFwnTsNhf
— Theodor Palmason (@TeddiPonza) March 29, 2021
Er Arnar að búa til þetta leikrit til þess að hylma yfir þessa ömurlega frammistöðu liðs síns? Ekkert annað sem kemur til greina, lygin er svo vond. https://t.co/a7m9yhYKMX
— Brynjar Elvarsson (@binnielvars) March 29, 2021
Tactical off-field master class hjá Arnari Viðars. Shiftar öllum hitanum af frammistöðu leikmanna yfir á sjálfan sig. Stórsigur líklega incoming til að starta þessari undankeppni fyrir alvöru á erfiðum útivelli í næsta leik. pic.twitter.com/f8EMV0KZh4
— Jói Skúli (@joiskuli10) March 29, 2021
Arnar viðars að grafa vel undan ser og missa allan trúverðugleika með svona lygum i fjölmiðlum.#fotboltinet
— Óskar G Óskarsson (@Oggi_22) March 29, 2021
Verður Eiður kannski stjóri FH í sumar eftir allt saman? #fotboltinet
— Styrmir Sigurðsson (@StySig) March 29, 2021
Ég sá auglýstan dagskrárliðinn Ísland - Bíóland í gær á RÚV. Ég þorfði ekki að horfa af því að ég hélt að þetta væri landsleikur karla í fótbolta 😨😥⚽️
— Kristján Freyr (@KrissRokk) March 29, 2021
Það er tvöfalt kjaftshögg að:
— Alexander Freyr (@alexander_freyr) March 29, 2021
A) Endurnýja ekki landsliðið
B) Ná ekki úrslitum
Eina réttlæting fyrir óendurnýjun er góð úrslit / stórmótssæti. Ef það næst ekki skulum við setja púður í uppbyggingu til framtíðar. Enn hægt að halda í nokkra lykilmenn (Gylfa, Jóa, Aron).
Ég veit nákvæmlega hvað þarf að gera fyrir landsliðið, hvað á að gera í sambandi við sóttvarnir og bólusetningar og hvernig ætti að stýra aðgengi að gosinu. En ég ætla ekki að segja ykkur það.
— Freyr Eyjólfsson (@FreyrEyjolfsson) March 29, 2021
Við þurfum bara að komast aftur að rótunum. #bringbackErrea #fotboltinet
— Guðmundur Jónsson (@gudmjons) March 28, 2021
Sorry en mér finnst alveg magnað að fólk og fjölmiðlar lepji upp eitthvað sem Guðjón Þórðarson segir varðandi landsliðið okkar og leikmenn og úr verða fréttir eða slúður. Alveg magnað ...
— Heiðar Austmann (@haustmann) March 29, 2021
Að við séum árið 2021 að hlusta á skoðanir Gaua Þórðar 🙈 trúi ekki að það sé eftirspurn eftir því... sorglegur https://t.co/pr6dznkteU
— Garðar Örn Arnarson (@gardarorn23) March 28, 2021
Það er sorglegt að hlusta á fyrrv þjálfara gaspra um hluti sem hann virðist lítið vita um.
— Jón Páll Pálmason (@jonpall_) March 29, 2021
Maður myndi ætla að einn reyndasti þjálfari landsins gæti séð að fjarvera GS, AF og lítið leikform Jóa hefur gríðarleg áhrif á sóknar-og varnarleik landsliðsins. https://t.co/kR3TfQe9mN
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) March 29, 2021