29.03.22 - 12:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fram fær danskan framherja (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
Fram tilkynnti í dag um komu danska leikmannsins Jannik Pohl. Jannik er 25 ára og spilaði síðast með Horsens. í Danmörku.
Á ferlnum hefur hann spilað rétt ríflega 100 deildarleiki og skorað fimmtán mörk. Hann hefur spilað fyrir AaB, Groningen og Horsens. Þá hefur hann spilað yfir þrjátíu leiki fyrir yngri landslið Danmerkur og skorað sex mörk.

Samningur Pohl við Horsens rann út um áramótin og kemur hann því á frjálsri sölu til Fram. Samningur hans gildir út tímabilið.
Tímabilið 2020-21 missti hann mikið út vegna meiðsla og ef ferillinn er skoðaður hefur hann talsvert verið frá vegna meiðsla.
Tímabilið 2017-18 var hans besta tímabil. Þá skoraði hann sjö mörk í 26 leikjum með AaB í Superliga og var í kjölfarið fenginn til hollenska félagsins Groningen.
„Það er mikill heiður og ánægjuefni að Jannik hafi kosið Fram sem sinn næsta áfangastað á ferlinum. Í heildina hefur Jannik spilað 34 landsleiki fyrir yngri landslið Danmerkur.
Stjórn knattspyrnudeildar Fram er afar ánægð að ná samkomulagi við Jannik Pohl og er sannfærð um að hann muni reynast mikilvægur hlekkur í baráttunni í Bestu Deildinni í sumar."