Fotbolti.net
29.04.13 - 19:00
Daníel Freyr Jónsson

ÍBV fær ungan leikmann frá QPR (Staðfest)

Bradley Simmonds.

Bradley Simmonds.

Canon

Mynd: Heimasíða QPR

ÍBV hefur samið við Englendinginn Bradley Simmonds um að leika með liðinu í sumar. Hann kemur frá úrvalsdeildarliðinu QPR.
Simmonds, sem er 18 ára gamall sókndjarfur miðjumaður, kom til Íslands í dag og staðfesti hann fregnirnar um að hann væri á leið til ÍBV á Twitter.

,,Takk @OfficialQPR fyrir síðustu 4 ár. Þetta hefur verið frábær reynsla. Hlakka nú til að takast á við ný verkefni á Íslandi með ÍBV,\" skrifaði Simmonds á Twitter-síðu sína í dag.

Simmonds lék sem lánsmaður hjá Staines Town og Woking í neðri deildum Englands tímabundið á þessu tímabili.

Hann mun nú koma inn í leikmannahóp ÍBV sem er í lokaundirbúning fyrir fyrsta leik í Pepsi-deildinni gegn ÍA næstkomandi sunnudag.
Simmonds birti þessa mynd af flugmiða sínum til Íslands.

Simmonds birti þessa mynd af flugmiða sínum til Íslands.

Canon

Mynd: Twitter

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.