29.04.13 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Steven Beattie í Tindastól (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Tindastóll hefur samið við framherjann Steven Beattie en hann mun spila með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Beattie þekkir til á Sauðárkróki því hann lék með Tindastóli síðari hlutann á síðasta tímabili.
,,Er formlega genginn aftur til liðs við Tindastól á Íslandi. Hlakka til að takast á við stórt tímabil,\" sagði Beattie á Twitter síðu sinni.
Hinn 24 ára gamli Beattie skoraði fjögur mörk í tíu leikjum með Tindastóli á síðasta tímabili.
Beattie, sem er frá Írlandi, hefur raðað inn mörkunum í háskólaboltanum í Bandaríkjunum undanfarin ár en Toronto var með hann á lista hjá sér fyrir nýliðavalið í MLS deildinni.
Tindastóll mætir Leikni R. í fyrstu umferðinni í 1. deildinni fimmtudaginn 9. maí næstkomandi.