Fotbolti.net
29.04.13 - 15:54
Magnús Már Einarsson

Varnarmaður úr úrvalsdeildinni í Serbíu í KA (Staðfest)

Bjarni Jóhannsson þjálfari KA.

Bjarni Jóhannsson þjálfari KA.

Canon

Mynd: Heimasíða KA

KA er með serbneska varnarmannin Ivan Dragicevic til reynslu og líklegt að samið verði við hann. Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur í vetur leikið með FK Radnički Niš í úrvalsdeildinni í heimalandi sínu.

Dragicevic er reyndur leikmaður en hann hefur spilað með mörgum félögum í heimalandi sínu.
,,Þetta er mjög öflugur leikmaður. Það er ekki á hverjum degi sem íslensk félög krækja í leikmann sem er að spila í efstu deild í Serbíu,\" sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari KA við Fótbolta.net í dag.

KA hefur styrkt varnarleik sinn í vetur en félagið hefur krækt í Atla Svein Þórarinsson og hinn danska Mads Rosenberg.

KA mætir Selfyssingum í fyrstu umferðinni í 1. deild fimmtudaginn 9. maí næstkomandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.