Fotbolti.net
29.04.14 - 21:20
Hafliði Breiðfjörð

Anton Ari og Gunnar í Val (Staðfest)

Anton Ari Einarsson.

Anton Ari Einarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valsmenn hafa fengið markvörðinn Anton Ara Einarsson til liðs við sig frá Aftureldingu.

Anton er fæddur árið 1994 en hann lék alla leiki Aftureldingar í 2. deildinni í fyrra.

Fyrr í vetur var hann á Englandi í nokkrar vikur þar sem hann æfði með bæði Manchester City og Bolton Wanderers.
Fyrr í vikunni sömdu Valsarar einnig við miðjumanninn Gunnar Gunnarsson en hann er fæddur árið 1993.

Gunnar kom til Vals frá Gróttu í vetur og hefur leikið með Hlíðarendarpiltum í Lengjubikarnum en hann spilaði áður með yngri flokkum Stjörnunnar og Víkings R.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.