Fotbolti.net
29.04.22 - 11:08
Elvar Geir Magnússon

Rangnick ráðinn þjálfari Austurríkis (Staðfest)

Ralf Rangnick mun starfa sem ráðgjafi hjá Manchester United samhliða því að þjálfa austurríska landsliðið.

Ralf Rangnick mun starfa sem ráðgjafi hjá Manchester United samhliða því að þjálfa austurríska landsliðið.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur staðfest að Ralf Rangnick hafi skrifað undir tveggja ára samning um þjálfun austurríska landsliðsins.

Hann verður samhliða því ráðgjafi hjá United þegar Erik ten Hag tekur við liðinu í sumar.

Rangnick tekur formlega til starfa hjá austurríska landsliðinu í lok maí þegar tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni lýkur og stýrir Austurríki gegn Króatíu, Danmörku og Frakklandi í Þjóðadeildinni

Ef Rangnick nær að koma Austurríki á EM 2024 þá framlengist samningur hans sjálfkrafa um tvö ár í viðbót.
„Ég mun taka við sem landsliðsþjálfari Austurríkis eftir tímabilið en mun halda áfram að starfa fyrir Manchester United sem ráðgjafi. Ég hlakka til að hjálpa United að verða alvöru afl að nýju. Það er heiður fyrir mig að vera ráðinn þjálfari Austurríkis," segir Rangnick.

„Það er skemmtileg tilhugsun að komast á EM í Þýskalandi með ungt og spennandi lið sem er hungrað í að ná árangri."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.