Gunnar Gylfason, fyrrum starfsmaður KSÍ, skrifaði skoðunarpistil á Vísi þar sem hann gagnrýnir fyrirhugaða stúkubyggingu við Kórinn í Kópavogi.
Þar á að byggja upp nýjað aðalvöll fyrir HK og ganga til samninga við verktaka um að byggja nýja stúku. Gunnar segir að samkvæmt teikningum verði aðstaða íþróttafólks ekki nægilega góð.
Þar á að byggja upp nýjað aðalvöll fyrir HK og ganga til samninga við verktaka um að byggja nýja stúku. Gunnar segir að samkvæmt teikningum verði aðstaða íþróttafólks ekki nægilega góð.
„Síðustu tölur sem ég heyrði um kostnað við byggingu stúkunnar voru 2,2 milljarðar. Já það er fullt af peningum og þegar verið er að tala um að byggja lágmarksmannvirki sem frá fyrsta degi verður of lítið fyrir þá starfsemi sem þar á að vera er ekki að mínu mati verið að fara vel með fjármuni okkar skattgreiðanda í Kópavogi," skrifar Gunnar.
Hann segir að samkvæmt teikningum verði klefar of litlir til að rúma alla leikmenn og sé lágmarksaðstaða samkvæmt mannvirkjareglugerð KSÍ.
„Þessi aðstaða sem bæjarstjórinn ætlar að bjóða knattspyrnufólki í HK er of lítil og léleg og rétt er að hafa í huga að þessi bygging mun standa og vera í notkun í áratugi, og alltaf vera of lítil og léleg."
Hér má lesa pistilinn í heild sinni





