29.05.14 - 07:30
Daníel Freyr Jónsson
Adam Le Fondre til Cardiff (Staðfest)

Adam Le Fondre.

Mynd: Getty Images

Adam Le Fondre.

Mynd: Getty Images
Framherjinn Adam Le Fondre er genginn í raðir Cardiff City frá Reading. Skrifaði hann undir þriggja ára samning.
Þessi 27 ára gamli leikmaður er sá fjórði sem gengur í raðir Cardiff í sumar, en áður höfðu þeir Javi Guerra, Guido Burgstaller og Federico Macheda skrifað undir hjá welska félaginu.
Le Fondre skoraði í heildina 41 mark í 109 leikjum með Reading, þar af 12 mörk í úrvalsdeildinni leiktiðina 2012 til 2013 þar sem hann vakti talsverða athygli.
Skoraði hann 15 mörk í 40 leikjum í Championship-deildinni með Reading á síðustu leiktíð. Mun hann nú leika með Cardiff í þeirri deild eftir að félagið féll úr úrvalsdeildinni.

Heimild: Heimasíða Cardiff