Fotbolti.net
29.05.14 - 08:30
Daníel Freyr Jónsson

Atletico Madrid fær hinn efnilega Correa (Staðfest)

Angel Correa.

Angel Correa.

Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid hefur náð samkomulagi við framherjann Angel Correa um að ganga í raðir félagsins í sumar.

Kemur hann frá San Lorenzo í Argentínu og mun hann skrifa undir fimm ára samning hjá Atletico, en hann á eftir að gangast undir læknisskoðun.
Líkur eru á miklum mannabreytingum hjá Atletico í sumar eftir frábæra frammistöðu liðsins á tímabilinu. Hampaði liðið Spánarmeistaratitlinum og komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Diego Costa er einn af þeim sem gæti verið á förum frá félaginu, auk þeirra Arda Turan og Koke.

Correa kemur frá Rosario, sömu borg og Lionel Messi. Hjálpaði hann liði sínu í að komast í undanúrslit Libertadores Cup, sem er nokkurskonar Meistaradeild Suður-Ameríku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.