Fotbolti.net
29.05.14 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson

Jordi Gomez til Sunderland (Staðfest)

Jordi Gomez er góður miðjumaður með mikla reynslu úr enska boltanum.

Jordi Gomez er góður miðjumaður með mikla reynslu úr enska boltanum.

Canon

Mynd: Getty Images

Jordi Gomez er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Sunderland og kemur hann frá Championship-liði Wigan Athletic.

Gomez hefur verið hjá Wigan í fimm ár eftir komu sína á láni til Swansea árið 2008 frá Espanyol, en ári síðar var hann keyptur til Wigan.
Gomez vann enska bikarinn með Wigan í fyrra og skoraði ellefu mörk í Championship deildinni á nýliðinni leiktíð, sem skilaði honum heiðrinum að vera titlaður leikmaður ársins innan félagsins.

Þetta er sterk byrjun hjá Gus Poyet, stjóra Sunderland, á leikmannamarkaðinum í sumar en hann fékk bakvörðinn Billy Jones til sín í gær frá West Brom.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.