29.05.14 - 11:24
Alexander Freyr Tamimi
Lukasz Fabianski í Swansea (Staðfest)

Fabianski er farinn frá Arsenal.

Mynd: Getty Images

Fabianski er farinn frá Arsenal.

Mynd: Getty Images
Swansea hefur staðfest að markvörðurinn Lukasz Fabianski er genginn til liðs við félagið frá Arsenal.
Pólverjinn skrifaði undir fjögurra ára samning við Swansea, en hann kemur frítt til félagsins þann 1. júlí eftir sjö ár hjá Arsenal.
Fabianski átti erfitt með að fá tækifærin á Emirates leikvangnum, þar sem samlandi hans Wojciech Szczesny var markvörður númer eitt. Ákvað hann því að hafna samningstilboði Arsenal.
Nú er hann kominn til Swansea og sagðist í samtali við heimasíðu félagsins vera í skýjunum. Þessi skipti gefa þó orðrómum þess efnis að Michel Vorm sé á förum byr undir báða vængi.