Fotbolti.net
29.05.22 - 13:45
Brynjar Ingi Erluson

Rangnick verður ekki sérstakur ráðgjafi Man Utd (Staðfest)

Ralf Rangnick er hættur hjá Man Utd

Ralf Rangnick er hættur hjá Man Utd

Canon

Mynd: Getty Images

Ralf Rangnick er hættur störfum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Rangnick tók við sem bráðabirgðastjóri undir lok nóvember á síðasta ári og var gert að stýra liðinu út tímabilið á meðan félagið myndi finna nýjan stjóra.

Árangurinn undir stjórn þýska stjórans var arfaslakur. Það tókst ekki að koma liðinu í Meistaradeild Evrópu og þá datt það út í 16-liða úrslitum keppninnar.

Þegar Rangnick skrifaði undir hjá United var ákveðið að hann myndi gegna hlutverki sem sérstakur ráðgjafi félagsins næstu tvö árin, en það verður ekkert af því.

Rangnick tók við austurríska landsliðinu á dögunum og mun einbeita sér að því starfi en hann tilkynnti um ákvörðun sína í dag og hefur félagið nú sent frá sér yfirlýsingu.

„Við viljum þakka Ralf Rangnick fyrir hans framlag sem bráðabirgðastjóri félagsins síðustu sex mánuðina. Ralf mun nú einbeita sér að nýju starfi sem þjálfari austurríska landsliðsins og mun því ekki taka það að sér að vera sérstakur ráðgjafi hér á Old Trafford. Við viljum óska Ralf alls hins besta á þessum næsta kafla ferilsins," segir í yfirlýsingu United.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.