29.06.14 - 10:00
Grímur Már Þórólfsson
Lafferty til Norwich (Staðfest)

Kyle Lafferty er kominn aftur til Englands.

Mynd: Getty Images

Kyle Lafferty er kominn aftur til Englands.

Mynd: Getty Images
Norwich hefur keypt norður-írska landsliðsmanninn Kyle Lafferty frá ítalska félaginu Palermo fyrir óuppgefið kaupverð. Gerði leikmaðurinn þriggja ára samning við kanarífuglanna með möguleika á árs framlengingu.
Hinn 26 ára gamli Kyle Lafferty byrjaði ferilinn hjá Burnley í Englandi þar sem að hann skoraði 10 mörk í 83 deildarleikjum áður en að hann var keyptur til Rangers í Skotlandi.
Því næst fór hann til Sion í Sviss og loks Palermo. Þá hefur hann spilað 37 landsleiki fyrir Norður-Írland og skorað 9 mörk.
Eru þetta önnur kaup Norwich í sumar, en þeir hafa einnig samið við Lewis Grabban framherja frá Bournemouth fyrir komandi átök í næst efstu deild á Englandi.

Heimild: BBC