Fotbolti.net
29.06.16 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Unai Emery tekur við PSG (Staðfest)

Unai Emery.

Unai Emery.

Canon

Mynd: Getty Images

Unai Emery hefur verið ráðinn nýr þjálfari hjá Paris Saint-Germain í Frakklandi.

Hinn 44 ára gamli Emery tekur við af Laurent Blanc sem var rekinn í vikunni.

Emery var síðast þjálfari Sevilla en hann hjálpaði liðinu að vinna Evrópudeildina þriðja árið í röð.
„Það er með stolti sem ég samþykki að taka við PSG,\" sagði Emery.

PSG ætlar að styrkja hópinn vel fyrir næsta tímabil en frönsku meistararnir vilja gera ennþá betri hluti í Meistaradeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.