29.06.19 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Breel Embolo til Mönchengladbach (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Borussia Mönchengladbach er búið að krækja í Breel Embolo frá Schalke. Svisslendingurinn skrifar undir fjögurra ára samning við sitt nýja félag.
Embolo er 22 ára framherji og þótti gífurlega efnilegur þegar Schalke keypti hann af FC Basel fyrir þremur árum.
Honum tókst aldrei að festa sig í sessi í byrjunarliðinu hjá Schalke en á síðustu leiktíð gerði hann 5 mörk í 20 deildarleikjum.
Guardian telur Gladbach borga 12 milljónir evra fyrir Embolo en samkvæmt Bild verða milljónirnar 16 með aukagreiðslum.
„Við höfum fylgst með Breel í mörg ár og höfum fulla trú á að hann geti gert góða hluti hér," sagði Max Eberl, yfirmaður knattspyrnumála hjá Gladbach.