Fotbolti.net
29.06.19 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Jullien næstdýrastur í sögu Celtic (Staðfest)

Jullien næstdýrastur í sögu Celtic (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Celtic er búið að festa kaup á franska varnarmanninum Christopher Jullien. Hann kostar félagið 7 milljónir punda.
Jullien var eftirsóttur fyrir tveimur árum og var sterklega orðaður við Southampton þegar ljóst var að Virgil van Dijk yrði seldur.

Jullien er 26 ára og hefur leikið fyrir Auxerre, Freiburg og Dijon á ferlinum. Hann á tvo U20 leiki að baki fyrir Frakkland.

Hann er næstum því tveir metrar á hæð og því afar sterkur í loftinu en þykir nokkuð svifaseinn. Hann og Issa Diop mynduðu öflugt miðvarðarpar hjá Toulouse áður en Diop var seldur til West Ham.

Odsonne Edouard, samlandi Jullien, er dýrasti leikmaður í sögu Celtic. Hann kostaði 9 milljónir punda í fyrra og hefur gert 34 mörk í 81 leik fyrir félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.