Fotbolti.net
29.06.19 - 17:22
Ívan Guðjón Baldursson

Margrét og Iris farnar frá Þór/KA (Staðfest)

Margrét og Iris farnar frá Þór/KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Halldor Jón Sigurðsson, betur þekktur sem Donni, staðfesti í viðtali við Fótbolta.net að Margrét Árnadóttir og Iris Achterhof eru farnar frá félaginu.
Þetta staðfesti hann eftir 3-2 sigur gegn Val í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins fyrr í dag.

Margrét er búin að spila fimm leiki í sumar og Iris sjö. Þær leika báðar framarlega á vellinum og er Margrét búin að skora eitt mark í deild og Iris eitt í bikar.

Margrét fer til Bandaríkjanna í skóla og mun spila þar í háskólaboltanum á meðan Iris heldur heim til Hollands og svo til Englands í skóla.

Margrét mun vafalítið spila aftur fyrir Þór/KA þegar hún kemur aftur til Íslands.

Í ágúst bætast fjórir leikmenn við listann. Allar halda þær erlendis í skóla og er Andrea Mist Pálsdóttir ein þeirra. Andrea Mist er mikilvægur hlekkur í byrjunarliði Akureyringa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.