Fotbolti.net
29.06.19 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Max Kruse til Fenerbahce á frjálsri sölu (Staðfest)

Max Kruse til Fenerbahce á frjálsri sölu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýski framherjinn Max Kruse er genginn í raðir Fenerbahce í Tyrklandi. Hann er 31 árs gamall og skiptir um félag á frjálsri sölu eftir að samningurinn við Werder Bremen rann út.
Liverpool er meðal félaga sem voru orðuð við að fá Kruse frítt í sumar en stjórnarmaður félagsins neitaði þeim orðrómi á dögunum.

Kruse gerði 35 mörk í 92 leikjum hjá Bremen en þar áður hafði hann spilað fyrir St. Pauli, Freiburg, M'Gladbach og Wolfsburg. Þá hefur hann gert 4 mörk í 14 A-landsleikjum fyrir Þýskaland.

Kruse skrifar undir þriggja ára samning við Fenerbahce, sem endaði í 6. sæti í efstu deild á nýliðnu tímabili. Það voru mikil vonbrigði fyrir félagið sem missti af Evrópusæti í fyrsta sinn síðan 2003.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.