Fotbolti.net
29.06.19 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Mbabu og Schlager komnir til Wolfsburg (Staðfest)

Mbabu og Schlager komnir til Wolfsburg (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Wolfsburg er búið að bæta fimm leikmönnum við sig í sumar, fyrir rúmlega 20 milljónir evra samtals.
Svissneski bakvörðurinn Kevin Mbabu kemur frá Young Boys fyrir 9 milljónir evra. Mbabu er 24 ára gamall og var á mála hjá Newcastle í fjögur ár, frá 2013 til 2017.

Hann er 24 ára gamall og á 6 A-landsleiki að baki fyrir Sviss. Hann var lykilmaður í liði Young Boys sem rúllaði upp svissnesku deildinni með 20 stiga mun á nýliðnu tímabili.

Xaver Schlager er einnig búinn að skrifa undir samning við Wolfsburg eftir þrjú ár hjá Red Bull Salzburg, langbesta liðinu í Austurríki. Schlager er 21 árs miðjumaður sem hefur spilað 11 leiki fyrir austurríska landsliðið.

Schlager var lykilmaður í liði Salzburg og kostar rúmlega 12 milljónir evra. Hann þykir afar efnilegur og gæti farið beint inn í byrjunarliðið.

Þá er félagið einnig búið að staðfesta komu Joao Victor, Tobias Stirl og Paulo Otavio.

Kantmaðurinn Joao Victor kemur frítt frá LASK Linz í Austurríki þar sem hann var lykilmaður. Otavio kemur frá Ingolstadt og kostar tvær milljónir.

Stirl er ungur markvörður sem kemur frítt frá Eintracht Frankfurt og er hugsaður fyrir framtíðina.

Wolfsburg endaði í 6. sæti þýsku deildarinnar á liðinni leiktíð og er að styrkja sig fyrir komandi átök í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.