29.06.19 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vandræðagemsinn Ruben Semedo til Olympiakos (Staðfest)

Semedo í baráttu við Griezmann.

Mynd: Getty Images

Semedo í baráttu við Griezmann.

Mynd: Getty Images
Búið er að staðfesta félagaskipti portúgalska varnarmannsins Ruben Semedo til Olympiakos í Grikklandi.
Semedo er 25 ára miðvörður og þótti á sínum tíma ein helsta vonarstjarna Portúgal. Hann komst ungur inn í byrjunarliðið hjá Sporting og var keyptur til Villarreal fyrir tveimur árum.
Þrátt fyrir hæfileikana tókst Semedo ekki að segja skilið við slæman félagsskap og hefur hann á síðustu árum verið dæmdur tvisvar sinnum fyrir lögbrot. Í fyrra skiptið fékk hann dóm fyrir að vippa út byssu er hann átti í rifrildum á bar í Valencia. Í seinna skiptið var hann dæmdur til fangelsisvistar eftir að hafa bundið mann, lamið hann og rænt húsið hans ásamt tveimur félögum sínum.
Olympiakos endaði í öðru sæti grísku deildarinnar á síðustu leiktíð eftir Sverri Inga Ingasyni og félögum í PAOK.
Olympiakos borgar 5 milljónir evra fyrir Semedo, sem lék 11 leiki að láni hjá Huesca á liðnu tímabili.