
Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu fengu stórkostlegar móttökur þegar þær mættu á sína fyrstu æfingu í Sviss í dag. Liðið kom til Sviss í gær en Evrópumótið fer fram þar í landi.
Íslenska liðið er með aðsetur nálægt Thun og æfir á æfingasvæðinu hjá FC Allmendingen.
Íslenska liðið er með aðsetur nálægt Thun og æfir á æfingasvæðinu hjá FC Allmendingen.
Þetta er alls ekki stórt félag og er það mikið mál fyrir það að íslenska landsliðið æfi á svæðinu á meðan EM fer fram.
Það var stór hópur kominn saman þegar Fótbolti.net mætti á staðinn fyrr í dag og var búið að gera sérstaka bolti fyrir félagsfólkið. Voru þeir merktir 'EM 2025'.
Svo þegar rúta íslenska landsliðsins rann í hlað, þá var fólkið búið að raða sér upp og klappaði svo þegar leikmennirnir gengu úr rútunni. Það er óhætt að segja að þetta hafi verið alvöru móttökur.
Hér fyrir neðan má sjá myndband af því þegar íslenska liðið kom úr rútunni og meðfylgjandi eru einnig myndir.
Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir