Casemiro jafnaði metin - Sturluð markvarsla hjá Suzuki

Casemiro fagnar markinu

Mynd: EPA

Casemiro fagnar markinu

Mynd: EPA
Staðan er 1-1 í leik Brasilíu og Japan í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins, en það var Casemiro sem jafnaði metin með skalla snemma í síðari hálfleik.
Japan tók óvænta forystu á 29. mínútu þegar Kaishu Sano átti skot fyrir utan teig sem hafnaði niðri í vinstra horninu.
Brasilíumenn pressuðu stíft í upphafi síðari hálfleiks og voru búnir að hóta nokkrum sinnum áður en jöfnunarmarkið kom loks. Gabriel átti þá frábæra fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Casemiro reis hæst og stangaði boltann í netið.
Sjáðu jöfnunarmarkið hjá Casemiro
Stuttu áður höfðu Japanir bjargað ótrúlega á marklínu og rétt eftir markið varði Zion Suzuki stórkostlega skot frá Vinicius Junior í stöngina.
Það er nóg að gerast í síðari hálfleiknum og mikil spenna framundan.
Sjáðu vörsluna hjá Suzuki