Fotbolti.net
29.06.26 - 17:56
Brynjar Ingi Erluson

Kane líklega áfram hjá Bayern

Kane líklega áfram hjá Bayern
Canon

Mynd: EPA

Enski sóknarmaðurinn Harry Kane er líklegri til þess að framlengja samning sinn við Bayern München en að fara til Barcelona í sumar.
Barcelona í viðræðum um Kane
TENGT EFNI

Barcelona í viðræðum um Kane

Stjórnarmenn Barcelona eru sagðir ræða hvernig hægt væri að fjármagna kaup á Harry Kane.

Samkvæmt Sky Sports eru Kane og fjölskylda hans ánægð í München.

Kane er sagður rólegur yfir stöðunni og það sama á við um Bayern, þó hann eigi aðeins eitt ár eftir af samningi sínum.

David Ornstein hjá Athletic segir líklegustu sviðsmyndina vera að Kane framlengi dvöl sína hjá Bayern. Það þurfi eitthvað stórkostlegt að gerast til að hann fari til Barcelona.

Þessi 32 ára gamli framherji skoraði 61 mark með Bayern í öllum keppnum á síðustu leiktíð. Hann vann gullskó Evrópu fyrir að vera markahæsti leikmaðurinn í fimm stærstu deildum Evrópu, en þetta var í annað sinn sem hann vinnur verðlaunin.

Aðeins tveir aðrir leikmenn hafa unnið verðlaunin tvisvar eða oftar, en það eru Cristiano Ronaldo (4) og Lionel Messi (6).
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.