ÍBV hefur ákveðið að lána Eyþór Orra Ómarsson til KFS í 3. deild karla.
Eyþór Orri varð sumarið 2018 yngsti leikmaður í sögu efstu deildar þegar hann kom við sögu í 2-0 sigri á KR.
Hann er núna 18 ára gamall og hefur ekki tekist að festa sig í sessi í liði ÍBV.
Í sumar hefur hann komið við sögu í fimm leikjum með ÍBV í Lengjudeildinni. Alls hefur hann spilað með 35 leiki með meistaraflokki.
Hann mun klára tímabilið með KFS sem er í fallbaráttu í 3. deildinni.
Það er gluggadagur í dag og mun Fótbolti.net fjalla vel um ganga mála.
Athugasemdir