Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. júlí 2021 17:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kórdrengir lána Conner til Njarðvíkur (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík hefur fengið Conner Rennison á láni út tímabilið frá Kórdrengjum. Hann gekk í raðir Kórdrengja í vor.

Rennison er 19 ára vinnusamur miðjumaður sem kemur upp úr Hartlepool United akademíunni. Þegar Kórdrengir kynntu hann í vor var sagt að mörg félög í efstu deild á Englandi hafi haft áhuga á honum en hann hafi slitið krossband sem hægði á uppgangi ferilsins.

Conner spilaði sjö leiki með Kórdrengjum í Lengjudeildinni en mun klára tímabilið með Njarðvík í 2. deild.

Njarðvík reynir að vinna sér inn sæti í Lengjudeildinni á komandi tímabili. Njarðvík er í 5. sæti 2. deildar, fjórum stigum frá öðru sætinu.

Næsti leikur Njarðvíkur er á föstudaginn eftir rúma viku.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner