Manchester United hefur tilkynnt um ráðningu á nýjum þjálfara fyrir kvennalið sitt.
Ráðningarferlið hefur tekið sinn tíma. Casey Stoney hætti sem þjálfari liðsins fyrir tveimur og hálfum mánuði síðan. Leikmenn Man Utd eru sagðir ósáttir með það hversu lengi ferlið hefur tekið.
Nýi þjálfarinn er Marc Skinner. Hann er hættur sem þjálfari Orlando Pride í Bandaríkjunum og er núna búinn að samþykkja að taka við Man Utd. Hann skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á þriðja árinu.
Hjá Orlando þjálfaði hann íslensku landsliðskonuna Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur.
Skinner er 38 ára gamall Englendingur. Hann stýrði Birmingham City frá 2016 til 2019 en þá tók hann við Orlando í Bandaríkjunum.
✍️ 𝗧𝗵𝗲 𝘀𝘁𝗮𝗿𝘁 𝗼𝗳 𝗮 𝗻𝗲𝘄 𝗰𝗵𝗮𝗽𝘁𝗲𝗿...
— Manchester United Women (@ManUtdWomen) July 29, 2021
Introducing our new boss for the 2021/22 season and beyond: Marc Skinner! 🔴#MUWomen pic.twitter.com/wJ0T6dAvTf
Athugasemdir