Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 29. júlí 2021 13:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Michu í Fjarðabyggð (Staðfest)
Ekki þessi Michu samt.
Ekki þessi Michu samt.
Mynd: Getty Images
Fjarðabyggð, sem er á botni 2. deildar, var að klófesta spænska sóknarmanninn Michu.

Miguel Angel Escobedo Luna heitir sóknarmaðurinn. Kallaður Michu. Hinn eini sanni? Nei. Þessi er 23 ára og spilaði síðast í spænsku 5. deildinni.

Hann er nafni Michu sem sló í gegn með Swansea eitt tímabil í ensku úrvalsdeildinni fyrir átta, níu árum síðan. Skórnir eru farnir upp á hillu hjá þeim leikmanni.

Fjarðabyggð er í neðsta sæti 2. deildar, hefur ekki unnið leik og er með fimm stig. Það eru níu stig upp í öruggt sæti.

Félagið fékk í gær spænskan varnarmann og tvo aðra leikmenn. Núna er spænskur sóknarmaður mættur.
Athugasemdir
banner
banner
banner