Fotbolti.net
29.08.13 - 13:40
Magnús Már Einarsson

Mathieu Flamini til Arsenal (Staðfest)

Flamini í leik með Arsenal á sínum tíma.

Flamini í leik með Arsenal á sínum tíma.

Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur fengið franska miðjumanninn Mathieu Flamini í sínar raðir á nýjan leik.

Flamini spilaði 153 leiki með Arsenal frá 2004 til 2008 áður en hann gekk í raðir AC Milan.

Samningur hans þar rann út síðastliðið vor en Flamini hefur æft með Arsenal í sumar og nú hefur hann samið við félagið.
.,,Við erum mjög áægðir með að fá Mathieu aftur til okkar;\" sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.

,,Hann er með alvöru gæði með mikla vinnusemi og frábært hugarfar. Mathieu er sterkur miðjumaður en hann getur líka spilað í vörninni. Hann er góð viðbót við hópinn.\"

Heimild: Heimasíða Arsenal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.