Fotbolti.net
29.08.13 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Morten Gamst Pedersen í Karabukspor (Staðfest)

Morten Gamst Pedersen í Karabukspor  (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Norski vængmaðurinn Morten Gamst Pedersen hefur yfirgefið Blackburn og gengið í raðir Karabukspor í Tyrklandi.

Þessi 31 árs leikmaður skrifaði undir tveggja ára samning við Karabukspor.
Pedersen hefur verið hjá Blackburn Rovers síðan 2004 en var ekki í byrjunarliðinu í fyrstu leikjum tímabilsins og var sagt að hann gæti fundið sér nýtt félag.

Blackburn er með fjögur stig eftir fjóra fyrstu leiki sína í Championship-deildinni en Gary Bowyer er knattspyrnustjóri félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.