29.08.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Caio Henrique kominn til Mónakó (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mónakó er búið að staðfesta komu brasilíska bakvarðarins Caio Henrique til félagsins.
Henrique er vinstri bakvörður að upplagi en er afar fjölhæfur og getur einnig spilað á miðjunni og vinstri kanti.
Hann er 23 ára gamall og hefur verið hjá Atletico Madrid síðustu fjögur ár en aðeins spilað einn leik fyrir aðalliðið. Á tíma sínum hjá Atletico var hann lánaður út til Parana, Fluminense og Gremio í Brasilíu.
Mónakó greiðir 8 milljónir evra fyrir Henrique auk tveggja milljóna í árangurstengdar aukagreiðslur.
Henrique á 22 leiki að baki fyrir U23 og U20 landslið Brasilíu.