Fotbolti.net
29.08.20 - 11:52
Brynjar Ingi Erluson

CSKA kaupir fyrrum liðsfélaga Matta Vill og Samúels (Staðfest)

Hinn hárprúði Roman Babaev er hér ásamt Chidera Ejuke með treyju CSKA

Hinn hárprúði Roman Babaev er hér ásamt Chidera Ejuke með treyju CSKA

Canon

Mynd: Heimasíða CSKA Moskvu

Rússneska félagið CSKA Moskva hefur gengið frá kaupum á nígeríska vinstri kantmanninum Chidera Ejuke frá hollenska félaginu Heerenveen en kaupverðið er 12 milljónir evra.
Chidera er fæddur árið 1998 og uppalinn í Nígeríu en var keyptur til norska félagsins Vålerenga árið 2017.

Hann heillaði í Noregi og spilaði með þeim Matthíasi Vilhjálmssyni og Samúel Kára Friðjónssyni.

Hollenska félagið Heerenveen keypti hann frá Vålerenga á síðasta ári og gerði Ejuke afar vel á tímabilinu þar sem hann gerði 10 mörk í 29 deildarleikjum.

Rússneska félagið CSKA Moskva hefur verið í viðræðum við Heerenveen síðustu daga og var gengið frá kaupunum í gær en hann gerir fjögurra ára samning við félagið.

Þetta er þriðji leikmaðurinn sem CSKA fær í þessari viku en brasilíski miðvörðurinn Bruno Fuchs kom frá Internacional á dögunum og þá fékk liðið Baktiyar Zaynutdinov frá Rostov.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.