29.08.20 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Leeds fær Koch frá Freiburg (Staðfest)

Bielsa ætlar að nota Koch í hjarta varnarinnar á komandi leiktíð.

Mynd: Getty Images

Leeds United er búið að bæta tveimur leikmönnum við hópinn sinn í dag. Fyrst kom Rodrigo Moreno frá Valencia fyrir metfé og núna var félagi að staðfesta komu Robin Koch.
Marcelo Bielsa vantaði nýjan miðvörð og eftir að 25 milljón punda boði í Ben White, miðvörð Brighton, var hafnað ákvað félagið að leita á önnur mið.
Það tók ekki langan tíma að sannfæra Koch um að koma yfir í enska boltann en Leeds borgar 15 milljónir evra fyrir Þjóðverjann.
Koch er 24 ára og var lykilmaður í liði Freiburg á síðustu leiktíð. Hann fékk að spila tvo A-landsleiki í fyrra til að verðlauna góða frammistöðu í þýska boltanum.
Koch spilar yfirleitt sem miðvörður en er stundum notaður sem djúpur miðjumaður. Hann spilaði 87 leiki á þremur árum hjá Freiburg. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Leeds.