Fotbolti.net
29.08.20 - 10:48
Brynjar Ingi Erluson

Leeds kaupir Rodrigo fyrir metfé (Staðfest)

Rodrigo er mættur til Leeds

Rodrigo er mættur til Leeds

Canon

Mynd: Heimasíða Leeds

Enska úrvalsdeildarfélagið Leeds United hefur gengið frá kaupum á spænska sóknarmanninum Rodrigo frá Valencia. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leeds á heimasíðu félagsins.
Leeds vann sér sæti í úrvalsdeildinni undir lok síðasta tímabils og er þetta því í fyrsta sinn frá 2004 sem liðið spilar í deild þeirra bestu.

Eigendur félagsins ætla að styrkja hópinn verulega í sumar og byrjar fjörið á þokkalegri fjárfestingu.

Spænski framherjinn Rodrigo er genginn til liðs við Leeds en enska félagið greiðir 27 milljón punda fyrir hann og skrifaði hann þá undir samning til 2024.

Rodrigo skoraði 7 og lagði upp 11 mörk fyrir Valencia á síðustu leiktíð en hann hefur verið í stóru hlutverki hjá spænska liðinu síðustu árin.

Þetta er dýrasti leikmaðurinn í sögu Leeds en félagið hefur einnig fengið þá Helder Costa, Illan Meslier, Joe Gelhardt og Jack Harrison.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.