29.08.20 - 14:09
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd lánar Pereira út í sjötta sinn (Staðfest)

Joel Pereira

Mynd: Getty Images

Joel Pereira

Mynd: Getty Images
Enska B-deildarfélagið Huddersfield Town tilkynnti í dag komu Joel Pereira til félagsins frá Manchester United en hann verður á láni út tímabilið.
Pereira er 24 ára gamall Portúgali en hefur verið í herbúðum Man Utd frá 2012.
Hann hefur aðeins spilað þrjá leiki fyrir félagið og hefur hann nú verið lánaður út í sjötta sinn.
Pereira var á láni hjá skoska liðinu Hearts á síðustu leiktíð en hann hefur einnig farið á lán til Rochdale, Kortrijk, Belenenses og Vitoria de Setubal.
Samningur hans við Man Utd rennur út næsta sumar og er ekki talið líklegt að hann framlengi við félagið.