Fotbolti.net
29.08.20 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Remy féll á læknisskoðun hjá Benevento - Farinn til Tyrklands (Staðfest)

Remy féll á læknisskoðun hjá Benevento - Farinn til Tyrklands (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franski sóknarmaðurinn Loic Remy var við það að ganga í raðir Benevento sem vann ítölsku B-deildina í sumar. Hann samþykkti þriggja ára samning en féll svo á læknisskoðun í júlí.
Hann skoðaði sig um í mánuð og ákvað á endanum að skrifa undir hjá Caykur Rizespor í efstu deild í Tyrklandi, þar sem hann fær tveggja ára samning.

Remy gerði fína hluti með Lille á síðustu leiktíð og skoraði 14 mörk í 30 leikjum, þrátt fyrir að vera 33 ára gamall. Hann rann út á samningi í sumar og fer því til Tyrklands á frjálsri sölu.

Remy lék fyrir QPR, Newcastle, Crystal Palace og Chelsea á Englandi, auk félaga á borð við Marseille og Lyon í Frakklandi. Hann á 30 leiki að baki fyrir franska landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.