Fotbolti.net
29.08.20 - 21:52
Ívan Guðjón Baldursson

Sevilla fær spænskan landsliðsmann frá Real Madrid (Staðfest)

Óscar hefur skorað 13 mörk í 61 deildarleik hjá Leganes, auk þess að leggja 6 sinnum upp.

Óscar hefur skorað 13 mörk í 61 deildarleik hjá Leganes, auk þess að leggja 6 sinnum upp.

Canon

Mynd: Getty Images

Sevilla er búið að festa kaup á Óscar Rodriguez, 22 ára framsæknum miðjumanni sem kemur frá Real Madrid.
Óscar, sem á einn keppnisleik að baki fyrir Real, hefur verið að láni hjá Leganes síðustu tvö keppnistímabil.

Þar hefur hann verið algjör lykilmaður en 9 mörk í 30 deildarleikjum dugðu ekki til að bjarga Leganes frá falli á síðustu leiktíð.

Óscar er bestur í holunni fyrir aftan fremstu menn en getur einnig leikið á miðjunni eða vinstri kanti. Hann á 24 leiki að baki fyrir yngri landslið Spánverja og er í landsliðshópnum sem mætir Þýskalandi og Úkraínu í Þjóðadeildinni í byrjun september.

Samkvæmt spænskum fjölmiðlum borgar Sevilla 15 milljónir evra fyrir 75% hlut í Óscar. Real Madrid á enn 25% í honum og getur því hagnast verulega á næstu sölu.

Hann er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Sevilla sem vann Inter í úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrr í ágúst.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.