Fotbolti.net
29.08.20 - 11:32
Brynjar Ingi Erluson

Veljko Paunovic tekur við Reading (Staðfest)

Veljko Paunovic

Veljko Paunovic

Canon

Mynd: Getty Images

Enska B-deildarfélagið Reading tilkynnti í dag nýjan knattspyrnustjóra en Veljko Paunovic tekur við liðinu af Mark Bowen.
Reading rak Jose Gomes í október en Mark Bowen, yfirmaður íþróttamála hjá félaginum, tók tímabundið við liðinu og stýrði því út leiktíðina.

Það er nú kominn nýr maður í brúnna en serbneski þjálfarinn Veljko Paunovic er tekinn við liðinu.

Paunovic hefur þjálfað U18, U19 og U20 ára landslið Serbíu auk þess sem hann stýrði Chicago Fire í MLS-deildinni frá 2015 og fram í nóvember á síðasta ári.

Hann mun hitta lið Reading í Portúgal þar sem liðið undirbýr sig fyrir komandi leiktíð en Bowen verður áfram yfir knattspyrnumálum hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.