Fotbolti.net
29.08.20 - 21:28
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Weston McKennie lánaður til Juve (Staðfest) - Kostar 23 milljónir

Weston McKennie lánaður til Juve (Staðfest) - Kostar 23 milljónir
Canon

Mynd: Getty Images

Juventus er búið að staðfesta að allt er frágengið í sambandi við félagaskipti bandaríska miðjumannsins Weston McKennie.
McKennie kemur á eins árs lánssamningi sem Ítalíumeistararnir borga 4,5 milljónir evra fyrir. Juve getur svo gengið frá kaupum á McKennie fyrir 18,5 milljónir til viðbótar. Í heildina þarf Juve því að borga 23 milljónir evra til að kaupa hann.

McKennie er nýorðinn 22 ára og hefur Andrea Pirlo, nýr þjálfari Juve, miklar mætur á honum.

McKennie var eftirsóttur af liðum á borð við Southampton, Newcastle og Hertha Berlin.

Hann hefur gert 6 mörk í 19 A-landsleikjum fyrir Bandaríkin og er með 5 mörk í 90 leikjum yfir þriggja ára tímabil hjá Schalke.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.